Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
28 verses
1Drottinn, heyr þú bæn mína og hróp mitt berist til þín.
2(102:3) Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, þegar ég er í nauðum staddur, hneig að mér eyra þitt, þegar ég kalla, flýt þér að bænheyra mig.
3(102:4) Því að dagar mínir hverfa sem reykur, bein mín brenna sem eldur.
4(102:5) Hjarta mitt er mornað og þornað sem gras, því að ég gleymi að neyta brauðs míns.
5(102:6) Sakir kveinstafa minna er ég sem skinin bein.
6(102:7) Ég líkist pelíkan í eyðimörkinni, er sem ugla í rústum.
7(102:8) Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.
8(102:9) Daginn langan smána óvinir mínir mig, fjandmenn mínir formæla með nafni mínu.
9(102:10) Ég et ösku sem brauð og blanda drykk minn tárum
10(102:11) sakir reiði þinnar og bræði, af því að þú hefir tekið mig upp og varpað mér burt.
11(102:12) Dagar mínir eru sem hallur skuggi, og ég visna sem gras.
12(102:13) En þú, Drottinn, ríkir að eilífu, og nafn þitt varir frá kyni til kyns.
13(102:14) Þú munt rísa upp til þess að miskunna Síon, því að tími er kominn til þess að líkna henni, já, stundin er komin.
14(102:15) Þjónar þínir elska steina hennar og harma yfir öskuhrúgum hennar.
15(102:16) Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar dýrð þína,
16(102:17) því að Drottinn byggir upp Síon og birtist í dýrð sinni.
17(102:18) Hann snýr sér að bæn hinna nöktu og fyrirlítur eigi bæn þeirra.
18(102:19) Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð, og þjóð, sem enn er ósköpuð, skal lofa Drottin.
19(102:20) Því að Drottinn lítur niður af sínum helgu hæðum, horfir frá himni til jarðar
20(102:21) til þess að heyra andvarpanir bandingjanna og leysa börn dauðans,
21(102:22) að þau mættu kunngjöra nafn Drottins í Síon og lofstír hans í Jerúsalem,
22(102:23) þegar þjóðirnar safnast saman og konungsríkin til þess að þjóna Drottni.
23(102:24) Hann hefir bugað kraft minn á ferð minni, stytt daga mína.
24(102:25) Ég segi: Guð minn, tak mig eigi burt á miðri ævinni. Ár þín vara frá kyni til kyns.
25(102:26) Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina, og himnarnir eru verk handa þinna.
26(102:27) Þeir líða undir lok, en þú varir. Þeir fyrnast sem fat, þú skiptir þeim sem klæðum, og þeir hverfa.
27(102:28) En þú ert hinn sami, og þín ár fá engan enda.
28(102:29) Synir þjóna þinna munu búa kyrrir og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.