Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
13 verses
1Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!
2(108:3) Vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.
3(108:4) Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,
4(108:5) því að miskunn þín er himnum hærri, og trúfesti þín nær til skýjanna.
5(108:6) Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,
6(108:7) til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.
7(108:8) Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.
8(108:9) Ég á Gíleað, ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.
9(108:10) Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."
10(108:11) Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?
11(108:12) Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.
12(108:13) Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.
13(108:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.