Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
8 verses
1Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.
2(12:3) Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir.
3(12:4) Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð,
4(12:5) þeim er segja: "Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?"
5(12:6) "Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp," segir Drottinn. "Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana."
6(12:7) Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.
7(12:8) Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur.
8(12:9) Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna.