Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
9 verses
1Ég varð glaður, er menn sögðu við mig: "Göngum í hús Drottins."
2Fætur vorir standa í hliðum þínum, Jerúsalem.
3Jerúsalem, þú hin endurreista, borgin þar sem öll þjóðin safnast saman,
4þangað sem kynkvíslirnar fara, kynkvíslir Drottins - það er regla fyrir Ísrael - til þess að lofa nafn Drottins,
5því að þar standa dómarastólar, stólar fyrir Davíðs ætt.
6Biðjið Jerúsalem friðar, hljóti heill þeir, er elska þig.
7Friður sé kringum múra þína, heill í höllum þínum.
8Sakir bræðra minna og vina óska ég þér friðar.
9Sakir húss Drottins, Guðs vors, vil ég leita þér hamingju.