Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
6 verses
1Þegar Drottinn sneri við hag Síonar, þá var sem oss dreymdi.
2Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: "Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá."
3Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.
4Snú við hag vorum, Drottinn, eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.
5Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.
6Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.