Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
13 verses
1Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum, vernda mig fyrir ofríkismönnum,
2(140:3) þeim er hyggja á illt í hjarta sínu og vekja ófrið á degi hverjum.
3(140:4) Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar, nöðrueitur er undir vörum þeirra. [Sela]
4(140:5) Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra, vernda mig fyrir ofríkismönnum, er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.
5(140:6) Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig og þanið út snörur eins og net, hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. [Sela]
6(140:7) Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn, ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni.
7(140:8) Drottinn Guð, mín máttuga hjálp, þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.
8(140:9) Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega, lát vélar hans eigi heppnast. [Sela]
9(140:10) Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig, ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá.
10(140:11) Lát rigna á þá eldsglóðum, hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.
11(140:12) Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu, ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum.
12(140:13) Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra, rekur réttar snauðra.
13(140:14) Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt, hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.