Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
10 verses
1Drottni heyrir jörðin og allt sem á henni er, heimurinn og þeir sem í honum búa.
2Því að hann hefir grundvallað hana á hafinu og fest hana á vötnunum.
3- Hver fær að stíga upp á fjall Drottins, hver fær að dveljast á hans helga stað?
4- Sá er hefir óflekkaðar hendur og hreint hjarta, eigi sækist eftir hégóma og eigi vinnur rangan eið.
5Hann mun blessun hljóta frá Drottni og réttlætingu frá Guði hjálpræðis síns.
6- Þessi er sú kynslóð er leitar Drottins, stundar eftir augliti þínu, þú Jakobs Guð. [Sela]
7- Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
8- Hver er þessi konungur dýrðarinnar? - Það er Drottinn, hin volduga hetja, Drottinn, bardagahetjan.
9- Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.
10- Hver er þessi konungur dýrðarinnar? - Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar. [Sela]