Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
8 verses
1Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér.
2(3:3) Margir segja um mig: "Hann fær enga hjálp hjá Guði!" [Sela]
3(3:4) En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt.
4(3:5) Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. [Sela]
5(3:6) Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér.
6(3:7) Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.
7(3:8) Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna.
8(3:9) Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! [Sela]