Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
22 verses
1Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni.
2(34:3) Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna.
3(34:4) Miklið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.
4(34:5) Ég leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist.
5(34:6) Lítið til hans og gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast.
6(34:7) Hér er volaður maður sem hrópaði, og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.
7(34:8) Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.
8(34:9) Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum.
9(34:10) Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort.
10(34:11) Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.
11(34:12) Komið, börn, hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins.
12(34:13) Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,
13(34:14) þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali,
14(34:15) forðast illt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann.
15(34:16) Augu Drottins hvíla á réttlátum, og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.
16(34:17) Auglit Drottins horfir á þá er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörðunni.
17(34:18) Ef réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá.
18(34:19) Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurmarið hjarta, þeim er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.
19(34:20) Margar eru raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.
20(34:21) Hann gætir allra beina hans, ekki eitt af þeim skal brotið.
21(34:22) Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir.
22(34:23) Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur.