Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
12 verses
1Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.
2(36:3) Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.
3(36:4) Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.
4(36:5) Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.
5(36:6) Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.
6(36:7) Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.
7(36:8) Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.
8(36:9) Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.
9(36:10) Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.
10(36:11) Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.
11(36:12) Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt.
12(36:13) Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.