Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
19 verses
1þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu. (51:3) Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.
2(51:4) Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni,
3(51:5) því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.
4(51:6) Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir.
5(51:7) Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.
6(51:8) Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!
7(51:9) Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.
8(51:10) Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið.
9(51:11) Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.
10(51:12) Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.
11(51:13) Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.
12(51:14) Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,
13(51:15) að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.
14(51:16) Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.
15(51:17) Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!
16(51:18) Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum - annars mundi ég láta þær í té - og að brennifórnum er þér ekkert yndi.
17(51:19) Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.
18(51:20) Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!
19(51:21) Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.