Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
7 verses
1Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela]
2(67:3) svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.
3(67:4) Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.
4(67:5) Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela]
5(67:6) Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.
6(67:7) Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss.
7(67:8) Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.