Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
9 verses
1Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn.
2(8:3) Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.
3(8:4) Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,
4(8:5) hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þess?
5(8:6) Þú lést hann verða litlu minni en Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann.
6(8:7) Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum, allt lagðir þú að fótum hans:
7(8:8) sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,
8(8:9) fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu.
9(8:10) Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!