Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
19 verses
1Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð, þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð.
2(80:3) Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím, Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar!
3(80:4) Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.
4(80:5) Drottinn, Guð hersveitanna, hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns?
5(80:6) Þú hefir gefið þeim tárabrauð að eta og fært þeim gnægð tára að drekka.
6(80:7) Þú hefir gjört oss að þrætuefni nágranna vorra, og óvinir vorir gjöra gys að oss.
7(80:8) Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.
8(80:9) Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi, stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann,
9(80:10) þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið.
10(80:11) Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré Guðs af greinum hans.
11(80:12) Hann breiddi út álmur sínar til hafsins og teinunga sína til Fljótsins.
12(80:13) Hví hefir þú brotið niður múrveggina um hann, svo að allir vegfarendur tína berin?
13(80:14) Skógargeltirnir naga hann, og öll dýr merkurinnar bíta hann.
14(80:15) Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur, lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa
15(80:16) og varðveit það sem hægri hönd þín hefir plantað, og son þann, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa.
16(80:17) Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn, fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir.
17(80:18) Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd, yfir mannsins barni, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa,
18(80:19) þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru, þá skulum vér ákalla nafn þitt.
19(80:20) Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur, lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.