Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
7 verses
1Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum,
2hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs.
3Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. [Sela]
4Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar, hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.
5En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni, og hann, Hinn hæsti, verndar hana.
6Drottinn telur saman í þjóðaskránum, einn er fæddur hér, annar þar. [Sela]
7Og menn syngja eins og þeir er stíga dans: "Allar uppsprettur mínar eru í þér."