Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
9 verses
1Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér.
2(20:3) Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Síon.
3(20:4) Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda. [Sela]
4(20:5) Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.
5(20:6) Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.
6(20:7) Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.
7(20:8) Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.
8(20:9) Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir.
9(20:10) Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum.