Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
14 verses
1Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa.
2(19:3) Hver dagurinn kennir öðrum, hver nóttin boðar annarri speki.
3(19:4) Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra.
4(19:5) Og þó fer hljómur þeirra um alla jörðina, og orð þeirra ná til endimarka heims. Þar reisti hann röðlinum tjald.
5(19:6) Hann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu, hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt.
6(19:7) Við takmörk himins rennur hann upp, og hringferð hans nær til enda himins, og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans.
7(19:8) Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran.
8(19:9) Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað. Boðorð Drottins eru skír, hýrga augun.
9(19:10) Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu. Ákvæði Drottins eru sannleikur, eru öll réttlát.
10(19:11) Þau eru dýrmætari heldur en gull, já, gnóttir af skíru gulli, og sætari en hunang, já, hunangsseimur.
11(19:12) Þjónn þinn varðveitir þau kostgæfilega, að halda þau hefir mikil laun í för með sér.
12(19:13) En hver verður var við yfirsjónirnar? Sýkna mig af leyndum brotum!
13(19:14) Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drottna yfir mér. Þá verð ég lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti.
14(19:15) Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari!