Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
17 verses
1Ég hefi sett alla von mína á Drottin, og hann laut niður að mér og heyrði kvein mitt.
2(40:3) Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, upp úr hinni botnlausu leðju, og veitti mér fótfestu á kletti, gjörði mig styrkan í gangi.
3(40:4) Hann lagði mér ný ljóð í munn, lofsöng um Guð vorn. Margir sjá það og óttast og treysta Drottni.
4(40:5) Sæll er sá maður, er gjörir Drottin að athvarfi sínu og snýr sér eigi til hinna dramblátu né þeirra er snúist hafa afleiðis til lygi.
5(40:6) Mörg hefir þú, Drottinn, Guð minn, gjört dásemdarverk þín og áform þín oss til handa, ekkert kemst í samjöfnuð við þig. Ef ég ætti að boða þau og kunngjöra, eru þau fleiri en tölu verði á komið.
6(40:7) Á sláturfórnum og matfórnum hefir þú enga þóknun, - þú hefir gefið mér opin eyru - brennifórnir og syndafórnir heimtar þú eigi.
7(40:8) Þá mælti ég: "Sjá, ég kem, í bókrollunni eru mér reglur settar.
8(40:9) Að gjöra vilja þinn, Guð minn, er mér yndi, og lögmál þitt er hið innra í mér."
9(40:10) Ég hefi boðað réttlætið í miklum söfnuði, ég hefi eigi haldið vörunum aftur, það veist þú, Drottinn!
10(40:11) Ég leyndi eigi réttlæti þínu í hjarta mér, ég kunngjörði trúfesti þína og hjálpræði og dró eigi dul á náð þína og tryggð í hinum mikla söfnuði.
11(40:12) Tak þá eigi miskunn þína frá mér, Drottinn, lát náð þína og trúfesti ætíð vernda mig.
12(40:13) Því að ótal hættur umkringja mig, misgjörðir mínar hafa náð mér, svo að ég má eigi sjá, þær eru fleiri en hárin á höfði mér, mér fellst hugur.
13(40:14) Lát þér, Drottinn, þóknast að frelsa mig, skunda, Drottinn, mér til hjálpar.
14(40:15) Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.
15(40:16) Lát þá verða forviða yfir smán sinni, er hrópa háð og spé.
16(40:17) En allir þeir er leita þín skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu skulu sífellt segja: "Vegsamaður sé Drottinn!"
17(40:18) Ég er hrjáður og snauður, en Drottinn ber umhyggju fyrir mér. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, tef eigi, Guð minn!