Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
13 verses
1Ég sagði: "Ég vil gefa gætur að vegum mínum, að ég drýgi eigi synd með tungunni, ég vil leggja haft á munn minn, meðan hinn illgjarni er í nánd við mig."
2(39:3) Ég var hljóður og þagði, en kvöl mín ýfðist.
3(39:4) Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp, ég sagði:
4(39:5) "Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum, lát mig sjá, hversu skammær ég er.
5(39:6) Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og ævi mín er sem ekkert fyrir þér. Andgustur einn eru allir menn. [Sela]
6(39:7) Sem tómur skuggi gengur maðurinn um, gjörir háreysti um hégómann einan, hann safnar í hrúgur, en veit eigi hver þær hlýtur."
7(39:8) Hvers vona ég þá, Drottinn? Von mín er öll á þér.
8(39:9) Frelsa mig frá öllum syndum mínum, lát mig eigi verða heimskingjum að spotti.
9(39:10) Ég þegi, ég opna eigi munninn, því að þú hefir talað.
10(39:11) Lát plágu þína víkja frá mér, ég verð að engu fyrir krafti handar þinnar.
11(39:12) Þá er þú beitir hirtingu við manninn fyrir misgjörð hans, lætur þú yndisleik hans eyðast, sem mölur væri. Andgustur einn eru allir menn. [Sela]
12(39:13) Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að ég er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir.
13(39:14) Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en ég fer burt og er eigi til framar.