Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
14 verses
1Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.
2(48:3) Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð, yst í norðri, borg hins mikla konungs.
3(48:4) Guð hefir í höllum hennar kunngjört sig sem vígi.
4(48:5) Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu, héldu fram saman.
5(48:6) Óðara en þeir sáu, urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.
6(48:7) Felmtur greip þá samstundis, angist sem jóðsjúka konu.
7(48:8) Með austanvindinum brýtur þú Tarsis-knörru.
8(48:9) Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna, í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]
9(48:10) Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu.
10(48:11) Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.
11(48:12) Síonfjall gleðst, Júdadætur fagna vegna dóma þinna.
12(48:13) Kringið um Síon, gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.
13(48:14) Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar, til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,
14(48:15) að slíkur sé Drottinn, Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.