Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
9 verses
1Klappið saman lófum, allar þjóðir, fagnið fyrir Guði með gleðiópi.
2(47:3) Því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur, voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni.
3(47:4) Hann leggur undir oss lýði og þjóðir fyrir fætur vora.
4(47:5) Hann útvaldi handa oss óðal vort, fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar. [Sela]
5(47:6) Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn.
6(47:7) Syngið Guði, syngið, syngið konungi vorum, syngið!
7(47:8) Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni, syngið Guði lofsöng!
8(47:9) Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum, Guð er setstur í sitt heilaga hásæti.
9(47:10) Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar, hann er mjög hátt upphafinn.