Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
12 verses
1Heyr orð mín, Drottinn, gef gaum að andvörpum mínum.
2(5:3) Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið ég.
3(5:4) Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.
4(5:5) Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki, hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.
5(5:6) Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér, þú hatar alla er illt gjöra.
6(5:7) Þú tortímir þeim, sem lygar mæla, á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstyggð.
7(5:8) En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.
8(5:9) Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér.
9(5:10) Einlægni er ekki til í munni þeirra, hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.
10(5:11) Dæm þá seka, Guð, falli þeir sakir ráðagjörða sinna, hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.
11(5:12) Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu, því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.
12(5:13) Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta, hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.