Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
7 verses
1þá er Sifítar komu og sögðu við Sál: Veistu að Davíð felur sig hjá oss? (54:3) Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu, rétt hlut minn með mætti þínum.
2(54:4) Guð, heyr þú bæn mína, ljá eyra orðum munns míns.
3(54:5) Því að erlendir fjandmenn hefjast gegn mér og ofríkismenn sækjast eftir lífi mínu, eigi hafa þeir Guð fyrir augum. [Sela]
4(54:6) Sjá, Guð er mér hjálpari, það er Drottinn er styður mig.
5(54:7) Hið illa mun fjandmönnum mínum í koll koma, lát þá hverfa af trúfesti þinni.
6(54:8) Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir, lofa nafn þitt, Drottinn, að það sé gott,
7(54:9) því að það hefir frelsað mig úr hverri neyð, og auga mitt hefir svalað sér á að horfa á óvini mína.