Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
23 verses
1Hlýð, ó Guð, á bæn mína, fel þig eigi fyrir grátbeiðni minni.
2(55:3) Veit mér athygli og svara mér. Ég kveina í harmi mínum og styn
3(55:4) sakir háreysti óvinarins, sakir hróps hins óguðlega, því að þeir steypa yfir mig ógæfu og ofsækja mig grimmilega.
4(55:5) Hjartað berst ákaft í brjósti mér, ógnir dauðans falla yfir mig,
5(55:6) ótti og skelfing er yfir mig komin, og hryllingur fer um mig allan,
6(55:7) svo að ég segi: "Ó að ég hefði vængi eins og dúfan, þá skyldi ég fljúga burt og finna hvíldarstað,
7(55:8) já, ég skyldi svífa langt burt, ég skyldi gista í eyðimörkinni. [Sela]
8(55:9) Ég skyldi flýta mér að leita mér hælis fyrir þjótandi vindum og veðri."
9(55:10) Rugla, Drottinn, sundra tungum þeirra, því að ég sé kúgun og deilur í borginni.
10(55:11) Dag og nótt ganga þær um á múrum hennar, en ógæfa og armæða eru þar inni fyrir.
11(55:12) Glötun er inni í henni, ofbeldi og svik víkja eigi burt frá torgi hennar.
12(55:13) Því að það er eigi óvinur sem hæðir mig - það gæti ég þolað, og eigi hatursmaður minn er hreykir sér yfir mig - fyrir honum gæti ég farið í felur,
13(55:14) heldur þú, jafningi minn, vinur minn og kunningi,
14(55:15) við sem vorum ástúðarvinir, sem gengum í eindrægni saman í Guðs hús.
15(55:16) Dauðinn komi yfir þá; stígi þeir lifandi niður til Heljar, því að illska er í bústöðum þeirra, í hjörtum þeirra.
16(55:17) En ég hrópa til Guðs, og Drottinn mun hjálpa mér.
17(55:18) Kvöld og morgna og um miðjan dag harma ég og styn, og hann heyrir raust mína.
18(55:19) Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið, svo að þeir geta eigi nálgast mig, því að mótstöðumenn mínir eru margir.
19(55:20) Guð mun heyra, og hann er ríkir frá eilífð mun lægja þá. [Sela] Þeir breytast ekki og óttast eigi Guð.
20(55:21) Vinur minn lagði hendur á þann er lifði í sátt við hann, hann rauf sáttmál sitt.
21(55:22) Hálli en smjör er tunga hans, en ófriður er í hjarta hans, mýkri en olía eru orð hans, og þó brugðin sverð.
22(55:23) Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum.
23(55:24) Og þú, ó Guð, munt steypa þeim niður í grafardjúpið. Morðingjar og svikarar munu eigi ná hálfum aldri, en ég treysti þér.