Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
11 verses
1Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis, og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá.
2(57:3) Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs, er kemur öllu vel til vegar fyrir mig.
3(57:4) Hann sendir af himni og hjálpar mér, þegar sá er kremur mig spottar. [Sela] Guð sendir náð sína og trúfesti.
4(57:5) Ég verð að liggja meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar, og tungur þeirra eru bitur sverð.
5(57:6) Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina!
6(57:7) Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína, sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. [Sela]
7(57:8) Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika.
8(57:9) Vakna þú, sál mín, vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.
9(57:10) Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,
10(57:11) því að miskunn þín nær til himna og trúfesti þín til skýjanna.
11(57:12) Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.