Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
11 verses
1Talið þér í sannleika það sem rétt er, þér guðir? Dæmið þér mennina með sanngirni?
2(58:3) Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu, hendur yðar vega út ofbeldi.
3(58:4) Hinir illu eru frá móðurlífi viknir af leið, lygarar fara villir vegar frá móðurskauti.
4(58:5) Eitur þeirra er eins og höggormseitur, þeir eru eins og dauf naðra, sem lokar eyrunum
5(58:6) til þess að heyra ekki raust særingamannsins né hins slungna töframanns.
6(58:7) Guð, brjót sundur tennurnar í munni þeirra, mölva jaxlana úr ljónunum, Drottinn!
7(58:8) Lát þá hverfa eins og vatn, sem rennur burt; miði hann örvum sínum á þá, þá hníga þeir,
8(58:9) eins og snigillinn, sem rennur í sundur og hverfur, ótímaburður konunnar, er eigi sá sólina.
9(58:10) Áður en pottar yðar kenna hitans af þyrnunum, hvort sem þyrnarnir eru grænir eða glóandi, feykir hann hinum illa burt.
10(58:11) Þá mun hinn réttláti fagna, af því að hann hefir fengið að sjá hefndina, hann mun lauga fætur sína í blóði hinna óguðlegu.
11(58:12) Þá munu menn segja: Hinn réttláti hlýtur þó ávöxt; það er þó til Guð, sem dæmir á jörðunni.