Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
17 verses
1Frelsa mig frá óvinum mínum, Guð minn, bjarga mér frá fjendum mínum.
2(59:3) Frelsa mig frá illgjörðamönnunum og hjálpa mér gegn morðingjunum,
3(59:4) því sjá, þeir sitja um líf mitt, hinir sterku áreita mig, þótt ég hafi ekki brotið eða syndgað, Drottinn.
4(59:5) Þótt ég hafi eigi misgjört, hlaupa þeir að og búast til áhlaups. Vakna þú mér til liðveislu og lít á!
5(59:6) En þú, Drottinn, Guð hersveitanna, Ísraels Guð, vakna þú til þess að vitja allra þjóðanna, þyrm eigi neinum fráhverfum syndara. [Sela]
6(59:7) Á hverju kvöldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.
7(59:8) Sjá, það freyðir úr munni þeirra, sverð eru á vörum þeirra, því að - "Hver heyrir?"
8(59:9) En þú, Drottinn, hlærð að þeim, þú gjörir gys að öllum þjóðunum.
9(59:10) Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín.
10(59:11) Guð kemur í móti mér með náð sinni, Guð lætur mig sjá óvini mína auðmýkta.
11(59:12) Drep þá eigi, svo að lýður minn gleymi eigi, lát þá reika fyrir veldi þínu og steyp þeim af stóli, þú Drottinn, skjöldur vor,
12(59:13) sakir syndar munns þeirra, orðsins af vörum þeirra, og lát þá verða veidda í hroka þeirra, og sakir formælinga þeirra og lygi, er þeir tala.
13(59:14) Afmá þá í reiði, afmá þá, uns þeir eru eigi framar til, og lát þá kenna á því, að Guð ríkir yfir Jakobsætt, allt til endimarka jarðar. [Sela]
14(59:15) Á hverju kveldi koma þeir aftur, ýlfra eins og hundar og sveima um borgina.
15(59:16) Þeir reika um eftir æti og urra, ef þeir verða eigi saddir.
16(59:17) En ég vil kveða um mátt þinn og fagna yfir náð þinni á hverjum morgni, því a�� þú hefir gjörst háborg mín og athvarf á degi neyðar minnar.
17(59:18) Vígi mitt, um þig vil ég kveða, því að Guð er háborg mín, minn miskunnsami Guð.