Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
12 verses
1Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss - snú þér aftur að oss.
2(60:4) Þú lést jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar.
3(60:5) Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, lést oss drekka vímuvín.
4(60:6) Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum. [Sela]
5(60:7) Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr oss, til þess að ástvinir þínir megi frelsast.
6(60:8) Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.
7(60:9) Ég á Gíleað og ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.
8(60:10) Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."
9(60:11) Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?
10(60:12) Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.
11(60:13) Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.
12(60:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.