Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
8 verses
1Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni.
2(61:3) Frá endimörkum jarðar hrópa ég til þín, meðan hjarta mitt örmagnast. Hef mig upp á bjarg það, sem mér er of hátt.
3(61:4) Leið mig, því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinum.
4(61:5) Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð, leita hælis í skjóli vængja þinna. [Sela]
5(61:6) Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín, þú hefir uppfyllt óskir þeirra er óttast nafn þitt.
6(61:7) Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns.
7(61:8) Hann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann.
8(61:9) Þá vil ég lofsyngja nafni þínu um aldur, og efna heit mín dag frá degi.