Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
12 verses
1Bíð róleg eftir Guði, sála mín, frá honum kemur hjálpræði mitt.
2(62:3) Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.
3(62:4) Hversu lengi ætlið þér að ryðjast allir saman gegn einum manni til að fella hann eins og hallan vegg, eins og hrynjandi múr?
4(62:5) Þeir ráðgast um það eitt að steypa honum úr tign hans, þeir hafa yndi af lygi, þeir blessa með munninum, en bölva í hjartanu. [Sela]
5(62:6) Bíð róleg eftir Guði, sála mín, því að frá honum kemur von mín.
6(62:7) Hann einn er klettur minn og hjálpræði, háborg mín - ég verð eigi valtur á fótum.
7(62:8) Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og hæli mitt hefi ég í Guði.
8(62:9) Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir honum, Guð er vort hæli. [Sela]
9(62:10) Hégóminn einn eru mennirnir, tál eru mannanna börn, á metaskálunum lyftast þeir upp, einber hégómi eru þeir allir saman.
10(62:11) Treystið eigi ránfeng og alið eigi fánýta von til rændra muna, þótt auðurinn vaxi, þá gefið því engan gaum.
11(62:12) Eitt sinn hefir Guð talað, tvisvar hefi ég heyrt það: "Hjá Guði er styrkleikur."
12(62:13) Já, hjá þér, Drottinn, er miskunn, því að þú geldur sérhverjum eftir verkum hans.