Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
11 verses
1Drottinn, þú ert minn Guð, þín leita ég, sál mína þyrstir eftir þér, hold mitt þráir þig, í þurru landi, örþrota af vatnsleysi.
2(63:3) Þannig hefi ég litast um eftir þér í helgidóminum til þess að sjá veldi þitt og dýrð,
3(63:4) því að miskunn þín er mætari en lífið. Varir mínar skulu vegsama þig.
4(63:5) Þannig skal ég lofa þig meðan lifi, hefja upp hendurnar í þínu nafni.
5(63:6) Sál mín mettast sem af merg og feiti, og með fagnandi vörum lofar þig munnur minn,
6(63:7) þá er ég minnist þín í hvílu minni, hugsa um þig á næturvökunum.
7(63:8) Því að þú ert mér fulltingi, í skugga vængja þinna fagna ég.
8(63:9) Sál mín heldur sér fast við þig, hægri hönd þín styður mig.
9(63:10) Þeir sem sitja um líf mitt sjálfum sér til glötunar, munu hverfa í djúp jarðar.
10(63:11) Þeir munu verða ofurseldir sverðseggjum, verða sjakölunum að bráð.
11(63:12) Konungurinn skal gleðjast yfir Guði, hver sá er sver við hann, skal sigri hrósa, af því að munni lygaranna hefir verið lokað.