Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
10 verses
1Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins. (64:2)
2(64:3) Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna,
3(64:4) er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng
4(64:5) til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir.
5(64:6)Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: "Hver ætli sjái það?"
6(64:7) Þeir upphugsa ranglæti: "Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!" því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla.
7(64:8) Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir,
8(64:9) og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið.
9(64:10) Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans.
10(64:11) Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.