Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
13 verses
1Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon, og við þig séu heitin efnd.
2(65:3) Þú sem heyrir bænir, til þín kemur allt hold.
3(65:4) Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari, en þú fyrirgafst afbrot vor.
4(65:5) Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum, að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.
5(65:6) Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti, þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,
6(65:7) þú sem festir fjöllin með krafti þínum, gyrtur styrkleika,
7(65:8) þú sem stöðvar brimgný hafsins, brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,
8(65:9) svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín, austrið og vestrið lætur þú fagna.
9(65:10) Þú hefir vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni, þú hefir framleitt korn þess, því að þannig hefir þú gjört það úr garði.
10(65:11) Þú hefir vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess, með regnskúrum hefir þú mýkt það, blessað gróður þess.
11(65:12) Þú hefir krýnt árið með gæsku þinni, og vagnspor þín drjúpa af feiti.
12(65:13) Það drýpur af heiðalöndunum, og hæðirnar girðast fögnuði.
13(65:14) Hagarnir klæðast hjörðum, og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.