Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
10 verses
1Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.
2(75:3) "Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.
3(75:4) Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela]
4(75:5) Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!
5(75:6) Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!"
6(75:7) Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,
7(75:8) heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.
8(75:9) Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.
9(75:10) En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði.
10(75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa.