Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
8 verses
1Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna:
2"Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? [Sela]
3Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum,
4bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra."
5Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða.
6Ég hefi sagt: "Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta,
7en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum."
8Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.