Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
18 verses
1Guð, ver eigi hljóður, ver eigi þögull og hald eigi kyrru fyrir, ó Guð!
2(83:3) Því sjá, óvinir þínir gjöra hark, og hatursmenn þínir hefja höfuðið,
3(83:4) þeir bregða á slæg ráð gegn lýð þínum, bera ráð sín saman gegn þeim er þú geymir.
4(83:5) Þeir segja: "Komið, látum oss uppræta þá, svo að þeir séu ekki þjóð framar, og nafns Ísraels verði eigi framar minnst!"
5(83:6) Því að þeir hafa einhuga borið saman ráð sín, gegn þér hafa þeir gjört bandalag:
6(83:7) Edómtjöld og Ísmaelítar, Móab og Hagrítar,
7(83:8) Gebal, Ammon og Amalek, Filistea ásamt Týrusbúum.
8(83:9) Assúr hefir einnig gjört bandalag við þá og ljær armlegg sinn Lots-sonum. [Sela]
9(83:10) Far með þá eins og Midían, eins og Sísera, eins og Jabín við Kísonlæk,
10(83:11) þeim var útrýmt hjá Endór, urðu að áburði á jörðina.
11(83:12) Gjör þá, göfugmenni þeirra, eins og Óreb og Seeb, og alla höfðingja þeirra eins og Seba og Salmúna,
12(83:13) þá er sögðu: "Vér viljum kasta eign vorri á vengi Guðs."
13(83:14) Guð vor, gjör þá sem rykmökk, sem hálmleggi fyrir vindi.
14(83:15) Eins og eldur, sem brennir skóginn, eins og logi, sem bálast upp um fjöllin,
15(83:16) svo skalt þú elta þá með ofviðri þínu, skelfa þá með fellibyl þínum.
16(83:17) Lát andlit þeirra fyllast sneypu, að þeir megi leita nafns þíns, Drottinn!
17(83:18) Lát þá verða til skammar og skelfast um aldur, lát þá sæta háðung og tortímast,
18(83:19) að þeir megi komast að raun um, að þú einn heitir Drottinn, Hinn hæsti yfir allri jörðunni.