Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
12 verses
1Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna.
2(84:3) Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði.
3(84:4) Jafnvel fuglinn hefir fundið hús, og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn!
4(84:5) Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig. [Sela]
5(84:6) Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér, er þeir hugsa til helgigöngu.
6(84:7) Er þeir fara gegnum táradalinn, umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun.
7(84:8) Þeim eykst æ kraftur á göngunni og fá að líta Guð á Síon.
8(84:9) Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð. [Sela]
9(84:10) Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða!
10(84:11) Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir, heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.
11(84:12) Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik.
12(84:13) Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér.