Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
13 verses
1Þú hefir haft þóknun á landi þínu, Drottinn, snúið við hag Jakobs,
2(85:3) þú hefir fyrirgefið misgjörð lýðs þíns, hulið allar syndir þeirra. [Sela]
3(85:4) Þú hefir dregið að þér alla bræði þína, látið af heiftarreiði þinni.
4(85:5) Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors, og lát af gremju þinni í gegn oss.
5(85:6) Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð, láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns?
6(85:7) Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur, svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér?
7(85:8) Lát oss, Drottinn, sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt!
8(85:9) Ég vil hlýða á það sem Guð Drottinn talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra, er snúa hjarta sínu til hans.
9(85:10) Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann, og vegsemdir munu búa í landi voru.
10(85:11) Elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast.
11(85:12) Trúfesti sprettur upp úr jörðunni, og réttlæti lítur niður af himni.
12(85:13) Þá gefur og Drottinn gæði, og land vort veitir afurðir sínar.
13(85:14) Réttlæti fer fyrir honum, og friður fylgir skrefum hans.