Loading Bible Translation
First-time download in progress. This may take a few seconds…
Icelandic Holy Bible Wordproject Bible
17 verses
1Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.
2(45:3) Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar, fyrir því hefir Guð blessað þig að eilífu.
3(45:4) Gyrð lendar þínar sverði, þú hetja, ljóma þínum og vegsemd.
4(45:5) Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis, hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti.
5(45:6) Örvar þínar eru hvesstar, þjóðir falla að fótum þér, fjandmenn konungs eru horfnir.
6(45:7) Hásæti þitt er Guðs hásæti um aldur og ævi, sproti ríkis þíns er réttlætis-sproti.
7(45:8) Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig með fagnaðarolíu framar félögum þínum.
8(45:9) Myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði, frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig.
9(45:10) Konungadætur eru meðal vildarkvenna þinna, konungsbrúðurin stendur þér til hægri handar í skrúða Ófír-gulls.
10(45:11) "Heyr, dóttir, og hneig eyra þitt! Gleym þjóð þinni og föðurlandi,
11(45:12) að konungi megi renna hugur til fegurðar þinnar, því að hann er herra þinn og honum átt þú að lúta.
12(45:13) Frá Týrus munu menn koma með gjafir, auðugustu menn lýðsins leita hylli þinnar."
13(45:14) Eintómt skraut er konungsdóttirin, perlum sett og gullsaumi eru klæði hennar.
14(45:15) Í glitofnum klæðum er hún leidd fyrir konung, meyjar fylgja henni, vinkonur hennar eru færðar fram fyrir þig.
15(45:16) Þær eru leiddar inn með fögnuði og gleði, þær fara inn í höll konungs.
16(45:17) Í stað feðra þinna komi synir þínir, þú munt gjöra þá að höfðingjum um land allt.
17(45:18) Ég vil gjöra nafn þitt minnisstætt öllum komandi kynslóðum, þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og ævi.